Vínvandræði

Stundum lætur maður plata sig út í eitthvað óforvarandis, og stundum veldur það manni vandræðum, jafnvel blautum og flóknum vandræðum sem maður kærir sig ekkert um að blogga um, en stundum sleppur allt rétt fyrir horn og eini skaðinn reynist vera fjólublá tunga og vægur seyðingur í höfði. Þannig var að félagi minn nefndi orðið „vínkeðja“ við mig um daginn, ég sagði já án þess að hugsa mikið um það og innan skamms var komin inn á borð til mín (í vinnunni meira að segja) þessi líka fína ítalska rauðvínsflaska, lokkandi fögur með litlum límmiða.

Ég var semsagt búinn að samþykkja að drekka eina vínflösku til smökkunar, gegn því að blogga örfá orð um mjöðinn. Allt í einu ofurseldur nútímamarkaðsotun. Sei sei.

Gott og vel – til að gulltryggja að álit mitt væri marktækt hóaði ég í góða vinkonu og eitt dimmviðriskvöldið sátum við saman, leystum að minnsta kosti þrjár af fjórum lífsgátunum og drukkum hægt og rólega hið rauða vín sem ber nafnið Montefalco frá Arnaldo Caprai. Ítalskt, að sjálfsögðu, enda fer helst ekkert inn fyrir mínar varir nema frá þeirri eðlu þjóð, hvort sem það eru léttvín eða Grappa eða Campari eða Martini eða Fernet Branca.

Ég ætla samt ekki að þykjast vera það sem ég er ekki: Vínsmökkunarsérfræðingur. Ég get bara vottað að Montefalco di Arnaldo Caprai rann ljúflega niður, og sjálfsagt er ekki hægt að orða það á klisjukenndari hátt – reynum eitthvað annað:

„Það sigldi fúsan og lygnan niðurstrauminn eins og einhver gaur í grískri goðafræði niður Vatnsfall Dauðans.“

„Það beit í kinnarnar eins og aðeins krækiberjalyng gæti.“

„Það man ekki eitthvað um skýin.“***


Ég veit nefnilega ekkert um tannín eða eik eða dísilkeim af vínum. Það eina sem ég veit er að ef maður veltir víninu í glasinu og það rennur hægt niður hliðarnar þá er það í sætari kantinum. Ef það rennur hratt niður er vínið þurrt. Gerið grín að ljóðskáldinu eins og þið viljið – meira veit ég ekki.

En fyrir mitt leyti er Montefalco mjög gott og fremur bragðmikið rauðvín. Og það rann hægt niður barmana. Tékk it.

montefalco  

 

***Og það er vissara að fram komi að þessi síðasta lína er vitanlega vísun í frábæran ljóðabókartitil Sjóns, „ég man ekki eitthvað um skýin“.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu búinn að skora á næsta bloggara?

Arnar Bjarnason (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 22:25

2 Smámynd: Davíð Stefánsson

Hei, nei, en ég geri það hér með: Skora á LífMagn að taka upp keðjuna. Þar fer kona sem hefur góðan smekk á þroskuðum vínum og ungum karlmönnum.

Davíð Stefánsson, 21.2.2008 kl. 22:48

3 identicon

Jááá - ég hlakka til að heyra frá henni!!!     Kær kv.  Edda frænka

Edda (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 02:05

4 identicon

Ahhh. hlakka til að heyra hvað Líf hefur að segja. Gaman að þessari keðju.

Lovísa (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 20:35

5 Smámynd: Davíð Stefánsson

Jæja, þá er það komið á hreint. Líf hefur engu svarað og ég verð því að hryggja Eddu og Lovísu með því. Góðu fréttirnar eru þær að Sigurlín Bjarney Gísladóttir skáldkona ætlar að taka verkið að sér - og gerir það án efa með stæl.

Góða skemmtun, Bjarney, með votar varir. 

Davíð Stefánsson, 3.3.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband