LOKAÐ! FLUTTUR!

Ágætu bloggvinir, hvort sem þið hafið áhuga á dægurþrasi, ljóðum eða óreiðufjármálum:

Ég hef stofnað nýtt blogg á yddarinn.blog.is og kem ekki hingað aftur.

Á Yddaranum verður bloggað um listir og menningu með áherslu á bókmenntir.

Verið velkomin.

Davíð. 


Vínvandræði

Stundum lætur maður plata sig út í eitthvað óforvarandis, og stundum veldur það manni vandræðum, jafnvel blautum og flóknum vandræðum sem maður kærir sig ekkert um að blogga um, en stundum sleppur allt rétt fyrir horn og eini skaðinn reynist vera fjólublá tunga og vægur seyðingur í höfði. Þannig var að félagi minn nefndi orðið „vínkeðja“ við mig um daginn, ég sagði já án þess að hugsa mikið um það og innan skamms var komin inn á borð til mín (í vinnunni meira að segja) þessi líka fína ítalska rauðvínsflaska, lokkandi fögur með litlum límmiða.

Ég var semsagt búinn að samþykkja að drekka eina vínflösku til smökkunar, gegn því að blogga örfá orð um mjöðinn. Allt í einu ofurseldur nútímamarkaðsotun. Sei sei.

Gott og vel – til að gulltryggja að álit mitt væri marktækt hóaði ég í góða vinkonu og eitt dimmviðriskvöldið sátum við saman, leystum að minnsta kosti þrjár af fjórum lífsgátunum og drukkum hægt og rólega hið rauða vín sem ber nafnið Montefalco frá Arnaldo Caprai. Ítalskt, að sjálfsögðu, enda fer helst ekkert inn fyrir mínar varir nema frá þeirri eðlu þjóð, hvort sem það eru léttvín eða Grappa eða Campari eða Martini eða Fernet Branca.

Ég ætla samt ekki að þykjast vera það sem ég er ekki: Vínsmökkunarsérfræðingur. Ég get bara vottað að Montefalco di Arnaldo Caprai rann ljúflega niður, og sjálfsagt er ekki hægt að orða það á klisjukenndari hátt – reynum eitthvað annað:

„Það sigldi fúsan og lygnan niðurstrauminn eins og einhver gaur í grískri goðafræði niður Vatnsfall Dauðans.“

„Það beit í kinnarnar eins og aðeins krækiberjalyng gæti.“

„Það man ekki eitthvað um skýin.“***


Ég veit nefnilega ekkert um tannín eða eik eða dísilkeim af vínum. Það eina sem ég veit er að ef maður veltir víninu í glasinu og það rennur hægt niður hliðarnar þá er það í sætari kantinum. Ef það rennur hratt niður er vínið þurrt. Gerið grín að ljóðskáldinu eins og þið viljið – meira veit ég ekki.

En fyrir mitt leyti er Montefalco mjög gott og fremur bragðmikið rauðvín. Og það rann hægt niður barmana. Tékk it.

montefalco  

 

***Og það er vissara að fram komi að þessi síðasta lína er vitanlega vísun í frábæran ljóðabókartitil Sjóns, „ég man ekki eitthvað um skýin“.


Ekki missa af þessari sýningu!

Ég vil hvetja alla til að missa ekki af þessari leiksýningu sem sýnd verður aftur 16., 19., og 20. janúar. Einstök leiklistarupplifun í óvenjulegum aðstæðum.

YFIRVOFANDI


Til að redda jólagjafainnkaupunum fyrir horn...

...á ódýran og þægilegan máta þá mæli ég eindregið með heimsókn í þessa nýju búð. Fór þarna sjálfur í gær og kláraði nánast öll innkaup á hálftíma. Frábært úrval og góð þjónusta.


Sumir textar eru betri en aðrir...

Stórkostleg upphafslína, frábær texti, gott lag:

 

It's so easy to love

It's so easy to hate

It takes guts to be gentle and kind


Þórðarvaka - kraftmikill ljóðaviðburður til heiðurs Þórði Helgasyni

Þórður Helgason er einn af þessum ljóðaunnendum sem lætur lítið fara fyrir sér. Samt hefur hann haft ómæld áhrif á íslenska grasrótarljóðlist síðustu 15-20 árin, með eigin ljóðum en ekki síst með því að halda utan um ljóðakennslu, fyrst í Verslunarskólanum og síðar í Kennaraháskólanum.

Í árdaga Nykurs kom Þórður að textabrýningu fjölmargra bóka, þar á meðal minna eigin. Hjá honum fékk maður góða hvatningu en hiklausar athugasemdir ef eitthvað mátti betur fara. Á þessu síðasta Nykur-ári (sem hefur verið hið líflegasta til þessa, heilar fimm nýjar bækur) hefur hann aftur komið inn sem virkur textarýnir og skilað fantagóðu verki.

Ég segi frá þessu hér og nú vegna þess að Þórður Helgason varð sextugur þann 5. nóvember síðastliðinn og Nykur, hið líflega sjálfsútgáfuljóðabókaforlag (sem opnar bráðum heimasíðu á nykur.is) ætlar að halda stórglæsilega ljóðadagskrá honum til heiðurs. Hér fyrir neðan eru allar upplýsingar skv. fréttatilkynningu og allir ljóðaunnendur eru hvattir til að eyða með okkur miðvikudagskvöldinu 14. nóvember:

Þórðarvaka Nykurs

Skáldafélagið Nykur stendur fyrir ljóðakvöldi til heiðurs Þórði Helgasyni, dósent og ljóðskáldi, en hann varð sextugur þann 5. nóvember. Þórðarvaka fer fram miðvikudagskvöldið 14. nóvember kl. 20:00 á efri hæð Café Sólons í Bankastræti.

Þórður var Nykri innan handar þegar félagið steig sín fyrstu skref árið 1995, auk þess sem hann hefur liðsinnt fjölmörgum ljóðskáldum og rithöfundum í gegnum árin. Í gegnum starf sitt hjá Kennaraháskóla Íslands hefur hann leitt stóran hóp kennaranema inn í ranghala ljóðlistarinnar og þannig stutt við ljóðið innvortis í menntakerfinu. Nykur sýnir þakklæti sitt í verki með því að smala ljóðskáldum á Þórðarvöku og bjóða upp á safaríka heiðursdagskrá. Þau skáld og rithöfundar sem lesa upp úr verkum sínum á Þórðarvöku eru:

Andri Snær Magnason

Arngrímur Vídalín

Davíð Stefánsson

Emil Hjörvar Petersen

Guðmundur Óskarsson

Ingunn Snædal

Kjartan Hallur Grétarsson

Sigtryggur Magnason

Sigurbjörg Þrastardóttir

og Þórður Helgason sjálfur

Að auki verður lesið úr verkum Sigurlínar Bjarneyjar Gísladóttur, Toshikis Toma og Kára Páls Óskarssonar, en bækur þeirra þriggja, ásamt bókum frá Emil Hjörvari Petersen og Guðmundi Óskarssyni, mynda fimm bóka uppskeru Nykurs árið 2007.
Í hléi spilar hljómsveitin Malneirophrenia epíska og svala tóna fyrir gesti kvöldsins. Tilboð á veitingum, aðgangur ókeypis og allir ljóðaunnendur velkomnir!

Siv Friðleifsdóttir og Jón Trausti Lúthersson

Í frétt á annarri fréttaveitu kemur fram að einn hinna handteknu heitir Jón Trausti Lúthersson.

Siv Friðleifsdóttir virðist hafa komið víða við. Er þetta sami maðurinn?

Siv og J.T. Lúthersson


mbl.is Ríkislögreglustjóri með viðbúnað vegna komu Vítisengla til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóðlistin er allra, líka trukkabílstjóra...

TRUKKABALL-LITIL

Listin að misvísa

Hver

Höfuðið á naglanum

Stundum hitta menn naglann algerlega beint á höfuðið:

Emancipate yourselves from mental slavery;

None but ourselves can free our minds.

http://youtube.com/watch?v=zsAXUuJR7J0

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband